MRK Ceramic

Listakonan

Um MRK

Margrét Ragna Kjartansdóttir lærði í Myndlista og handíðaskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 1993. Hún er félagi í Leirlistafélagi Íslands, Sambandi íslenskra myndlistarmanna (SÍM) og Vatnslitafélagi Íslands.

Snafsaglösin eru stór hluti af verkum hennar. Hvert og eitt er rennt á rennibekk og brennt tvisvar, fyrst við 900 °C og síðan við 1200 °C. Glösin eru tæplega 7 cm á hæð og flest úr hvítum steinleir, en nokkur eru úr svörtum steinleir. Undir hverju glasi er stimpill með útlínum Íslands.

Um þessar mundir er hún líka að hanna vasa og bolla. Verkin fást hér í vefversluninni og einnig er hægt að senda fyrirspurn um sérpantanir, hvort sem er fyrir einstaklinga eða fyrirtæki.

Ferlið

1

Rennt á rennibekk

Hvert stykki er rennt úr steinleir, ýmist hvítum eða svörtum.

2

Fyrri brennsla

Fyrst er brennt við 900 °C. Eftir það er stykkið tilbúið til glerjunar.

3

Glerjun og seinni brennsla

Glerungurinn er borinn á og stykkið brennt aftur við 1200 °C. Þá fær hvert og eitt sinn eigin svip.